Mánudagur, 16. apríl 2007
Franskt vor í Borgarnesi 20.-23. apríl
Dagana 20.-23. apríl verður dagskrá á vegum Safnahúss Borgarfjarðar og Landnámsseturs Íslands í tengslum við menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi. Sýningin Pourquoi Pas? - strandið sem er í Tjernihúsi í Englendingarvík verður opin á föstudeginum kl. 18.00-20.00 og á laugardeginum og sunnudeginum frá kl. 14.00-18.00. Á laugardeginum 21. apríl kl. 14.00 er sérstök dagskrá með ávörpum, upplestri, tónlistarflutningi og kaffiveitingum.
Mánudagskvöldið 23. apríl kl. 20.00 verður franski brúðuleikhúshópurinn Turak með sýningu í Landnámssetrinu.
Allir að mæta
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.