Sunnudagur, 26. nóvember 2006
Prófkjör á prófkjör ofan
Kristján Þór Júlíusson mun leiða lista þeirra Norðanmanna í vor og mun það vonandi slá á þær væringar sem uppi hafa verið á meðal Akureyringa um meint þingmannaleysi þeirra. Að öðru leiti hefur helgin ekki borið mikil tíðindi í skauti sé, en jú nokkur tíðindi þó að prófkjörið hjá Sjálfstæðismönnum í NA kjördæmi virðist vera án mikilla sárinda sem þykir víst sæta tíðindum í prófkjörum þetta haustið. Annars virðist frumvarpið um RÚV vera að sigla í strand enda get ég ekki séð annað en um tóma dellu sé að ræða þó það hafi verið lagt vel af stað. SELJUM RÚV STRAX og losnum þannig við allar þessar bætur á bætur ofan við frumvarp sem ætti að vera til einkavæðingar en ekki eingöngu til þess að breyta rekstrarformi RÚV.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.