Franskt vor í Borgarnesi 20.-23. apríl

Dagana 20.-23. apríl verður dagskrá á vegum Safnahúss Borgarfjarðar og Landnámsseturs Íslands í tengslum við menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi Sýningin Pourquoi Pas? - strandið sem er í Tjernihúsi í Englendingarvík verður opin á föstudeginum kl. 18.00-20.00 og á laugardeginum og sunnudeginum frá kl. 14.00-18.00. Á laugardeginum 21. apríl kl. 14.00 er sérstök dagskrá með ávörpum, upplestri,  tónlistarflutningi og kaffiveitingum.

 Mánudagskvöldið 23. apríl kl. 20.00 verður franski brúðuleikhúshópurinn Turak með sýningu í Landnámssetrinu.

Allir að mæta 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband